Flýtilyklar
Fréttir
Dómaranámskeið á Dalvík 2. maí
Dómara- og starfsmannanámseið til undirbúnings fyrir landsmótið verður haldið á Dalvík 2. maí og hefst kl. 11:00. Hvetjum alla sem hug hafa á að aðstoða okkur við mótahaldið í sumar eða í framtíðinni að mæta. Aðalleiðbeinandi og fyrirlesari verður Birgir Guðjónsson, Gunnar Sigurðsson greinastjóri á Landsmótinu verður með verklega hlutann. Svanhildur svansak@internet.is og Guðmundur Víðir logbergsgata7@simnet.is taka við skráningum. Allir velkomnir.
Lesa meira
Forskráning í 1. maí hlaup
Forskráning í 1. maí hlaupið er að hefjast. Hægt er að forskrá sig í Sportveri frá og með morgundeginum (27. apríl) og jafnframt er hægt að skrá sig með því að senda póst og gefa upp nafn, kennitölu, vegalengd sem á að hlaupa og nafn skóla ef um grunnskólanemendur er að ræða.
Við vekjum athygli á því að þátttökugjöld eru lægri fyrir þá sem skrá sig í forskráningu, auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun í hlaupinu. Forskráningu lýkur kl. 18:00 fimmtudaginn 30. apríl. Hér má sjá nánari upplýsingar um hlaupið.

Kleinubakstur laugardaginn 25. apríl
Næstkomandi laugardag ætlum við að baka kleinur og selja til fjáröflunar. Þeir sem geta tekið þátt í bakstrinum eiga að mæta í Síðuskóla kl 8:00, gengið inn að sunnan. Krakkarnir sem ganga í hús til að selja eiga að mæta á sama stað kl. 9:00.