Flýtilyklar
Fréttir
Grunnskólinn í Hrísey vann skólakeppnina
Um 330 manns tóku þátt í 1. maí hlaupi UFA í morgun. 260 krakkar hlupu 2 km, 20 manns hlupu 4 km og um 50 hlupu 10 km. Grunnskólinn í Hrísey náði bestri hlutfallslegri þáttöku en 82% nemenda tók þátt í hlaupinu og lauk þar með margra ára sigurgöngu Valsárskóla sem var í öðru sæti með 32% þátttöku. Oddeyrarskóli var í þriðjasæti í skólakeppninni með 17% þáttöku.
Í 4 km hlaupi kom Ívar Sigurbjörnsson fyrstur í mark á 13:48, annar var Ragnar Bjarkan Pálsson á 13:52 og þriðji var Tómas Már Svavarsson á 17:14. Fyrst kvenna var Elise Marie á 17:40, önnur var Rakel Ósk á 19:29 og þriðja var Björk Jóhannsdóttir á 21:11.
Í 10 km hlaupi sigraði Bjartmar Örnuson í karlaflokki en hann hljóp á 35:05, annar var Stefán Viðar Sigtryggson var annar á 37:56 og þriðji var Halldór Arinbjarnarson á 40:27. Rannveig Oddsdóttir var fyrst kvenna í 10 km hlaupi, hljóp á 39:31, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 42:49 og þriðja var Helga Árnadóttir á 44:13.
Nöfn þriggja fyrstu í hverjum aldursflokki í skólahlaupinu og tímar allra í 4 og 10 km hlaupi verða birt hér á síðunni innan tíðar.
Forskráningu lokiđ
Mót í Hrísey fimmtudaginn 30. apríl
Aldurflokkar: 8. ára og yndri, 9-10, 11-12, 13-14 og 15. ára og eldri
Keppnisgreinar: Langstökk án, þrístökk án, kúla, hástökk, hástökk án og boðhlaup.
Sund, pizzahlaðborð og gisting fyrir þá sem vilja. Þáttökugjöld á mótinu eru kr. 1500, gistingin kostar 500 kr. og pizzahlaðborð kr. 1000 og 12 ára og eldri þurfa að greiða kr 500 í ferjuna. Þeir sem gista geta farið í 1. maíhlaupið á Akureyri sem hefst kl. 13. ef þeir hafa skráð sig í forsskráningu. Ferjan fer til Hríseyjar frá Árskógssandi kl. 15:30 á fimmtudag og frá Hrísey kl. 21:00 eða um morguninn 1.maí kl. 11:00 Foreldrar þurfa að keyra (og hafa samband sem geta komið með!) -Stuttur kynningarfundur um ferðina verður haldinn kl 18:00 á miðvikud. 29. apríl í Íþróttahöllinni eftir æfingu.
Nánari upplýsingar gefa Unnar þjálfari s. 868-4547 og Gunnar í Hrísey s. 894-0334