Annað vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag 26. nóvember. Hlaupið hefst við Bjarg kl. 11:00 og þaðan er hlaupinn 10 km hringur.
Nánari upplýsingar hér. Lesa meira
Næstkomandi laugardag 12. nóvember heldur UFA frjálsíþróttamót í boganum. Keppt verður í helstu flokkum frjálsra íþrótta í aldursflokkum 10 ára og eldri og þrautabraut hjá 9 ára og yngri. Skráning fer fram hjá þjálfurum og þarf að tilkynna þeim um þátttöku í síðasta lagi á æfingu á fimmtudaginn. Skráningargjald er kr. 2000 fyrir 10 ára og eldri og 1500 fyrir 9 ára og yngri. Greiða þarf þátttökugjaldið áður en mótið hefst. Annað hvort með því að leggja inn á reikning félagsins og prenta út kvittun sem framvísað er á staðnum að morgni keppnisdags, eða með staðgreiðslu að morgni 12. nóvember (athugið að við erum ekki með posa). Mótið hefst kl. 10:00. Drög að tímaseðli má sjá á mótaforriti fri (sjá fri.is).
Lesa meira
Keppt verður í langstökki, þrístökkki og hástökki án atrennu. Mótið er til heiðurs Vilhjálmi Einarssyni þrístökkvara en hann er með myndlistarsýningu í Ketilhúsinu og sonardóttir hans með textílsýningu. Mótið hefst kl. 16:00 og eru allir velkomnir.
Lesa meira