• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Góð stemning í Gamlárshlaupi UFA

Um 80 manns tóku þátt í gamlárshlaupi og göngu UFA í morgun í fallegu veðri og ágætri vetrarfærð. Í 5 km hlaupi sigraði Fannar Hafsteinsson á 21:25 annar var Ágúst Bergur Kárason á 21:33 og þriðji var Ottó Biering Ottósson á 22:38. Brynhildur Bjarnadóttir var fyrst kvenna í 5 km hlaupi á 30:59, önnur var systir hennar Sigríður Bjarnadóttir 32:49 og þriðja var Jóhanna Mjöll Björnsdóttir á 33:34. Í 10 km hlaupi kom Bjartmar Örnuson úr UFA fyrstu í mark á 39:37, annar var Stefán Viðar Sigtryggsson á 41:13 og þriðji var Andri Steindórsson á 42:29. Fyrst kvenna (tíunda árið í röð!) var Rannveig Oddsdóttir úr UFA á 41:14, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 46:32 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 46:53. Að hlaupi loknu gæddu hlauparar og göngufólk sér á súpu í boði RUB23, veitt voru verðlaun fyrir fyrstu sætin og í búningakeppninni og dregin út fjöldi verðlauna frá Nettó, Bjargi og Súlum. 

Hér má sjá tíma allra sem hlupu.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA