Staðan í stigakeppni vetrarhlaupanna hefur nú verið uppfærð eftir gamlárshlaupið. Stefán Viðar og Rannveig hafa forystu í stigakeppni einstaklinga en enn getur allt gerst og sigurinn langt frá því vís. Liðakeppnin er æsispennandi og lítill munur var á þremur fyrstu liðunum að þessu sinni. Ski-team stimplaði sig inn í toppbaráttuna með sigri í gamlárshlaupinu, og Bjarg-sveitin tryggði sér forystuna í stigakeppni liða með öðru sæti, aðeins stigi á eftir þeim er svo Víkingasveitin. Úrslit allra vetrarhlaupanna og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða má sjá hér.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.