• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Spennandi kepppni í liðakeppni vetrarhlaupanna

Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í gærmorgun. Aðstæður til hlaupa voru ágætar, veður stillt, en heldur kalt og hált á götunum. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og mættu 27 hlauparar til leiks. Stefán Viðar Sigtryggsson var fyrstur í mark á 38;33, annar karla var sveitungi hans Snæþór Aðalsteinsson 41;06 og þriðji var Gísli Einar Árnason á 41;07. Önnur í mark og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 40;20, önnur kvenna var Sigríður Einarsdóttir á 45;40 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 46;43.

Líkt og í fyrsta hlaupinu var mjótt á mununum í liðakeppninni. Víkingasveitin náði bestum samanlögumtíma að þessu sinni 2:06;56, Ski-Team náið öðru sæti liðan með tímann 2:08;54 og fast á hæla þeim kom Bjarg á tímanum 2:08;48.

Tíma allra og stöðuna í stigakeppninni má sjá hér.

Lesa meira

Silfurleikar ÍR

Hinir árlegu Silfurleikar ÍR voru haldnir í Laugardalshöllinni um sl. helgi. Keppendur voru 559 alls staðar að af landinu. Mótið er haldið til heiðurs afreki Vilhjálms Einarssonar í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu 1956 er hann vann silfurverðlaun, fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Keppt er í aldursflokkum 17 ára og yngri. Að þessu sinni kepptu þær Ásgerður Jana Ágústsdóttir og Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir frá UFA og stóðu þær sig mjög vel m.a. sigraði Ásgerður Jana hástökkið í flokki 15 ára er hún stökk 1,60m. Öll úrslit má sjá á mot.fri.is
Lesa meira

Nóvembermót UFA

Nóvembermót UFA var haldið laugardaginn 12. nóvember sl. Mótið tókst vel og voru rúmlega 130 keppendur skráðir til leiks frá UFA og átta nágrannafélögum. Kjötsúpa og kaffiveitingar var í boði fyrir keppendur og starfsmenn. UFA þakkar keppendum og starfsmönnum fyrir þátttökuna.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA