Flýtilyklar
Fréttir
Glćsilegu Unglingalandsmóti lokiđ
Fjölmennasta Unglingalandsmóti til þessa lauk á miðnætti í gærkvöldi með veglegri flugeldasýningu.
Þátttakendur frá UFA héldu áfram að standa sig vel tvo seinni dagana og hafa verið félaginu til sóma nú sem áður.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði spjótkast 16-17 ára með 40,22m og einnig hástökkið en hún stökk 1,60m, hún varð svo í 3.sæti í kringlukasti með 27,90m.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 100m hlaup 16-17 ára á 10,99sek
Berglind Björk Guðmundsdóttir varð í 1.sæti í 800m hlaupi 14 ára á 2:30,73sek
Stefán Broddi Sigvaldason sigraði 80m hlaup 13 ára á 10,36sek
Líney Lilja Þrastardóttir varð í 2.sæti í 60m hlaupi 11 ára á 9,43sek og í 3.sæti í langstökki, stökk 4,18m
Sesselja Dís Heiðarsdóttir varð í 2.sæti í kúluvarpi 13 ára með 10,44m
Ragúel Pino varð í 3.sæti í 60m hlaupi á 9,17sek
Þorvaldur Ágúst Jónsson varð í 3.sæti í 100m hlaupi 14 ára á 12,47sek
Melkorka Ýrr Yrsudóttir varð í 3.sæti í spjótkasti 14 ára með 30,16m
Í 4x100m boðhlaupi 13 ára stráka sigraði sveit UFA á 58,05sek
Sveitir UFA hjá 11 ára strákum og 14 ára stelpum urðu báðar í 2. sæti í 4x100m. Einnig var hægt að keppa í boðhlaupum í blönduðum sveitum og var t.d. Líney Lilja í Svölu sveitinni en sú sveit sigraði boðhlaupið hjá 11 ára stelpum.
í lok mótsins var svo tilkynnt að Unglingalandsmót árið 2015 mun verða haldið á Akureyri. Að ári liðnu verður mótið á Höfn í Hornafirði og 2014 á Sauðárkróki.
Ađ loknum 1.degi á ULM
Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði kúluvarp í flokki 16-17ára með 12,32m
Sunna Rós Guðbergsdóttir 15ára varð í 2.sæti í þrístökki, stökk 10,34m og hún varð einnig í 2.sæti í langstökki 15ára með 5,12m
Berglind Björk Guðmundsdóttir 14ára varð í 2.sæti í þrístökki með 9,81m
Hilmar Örn Jórunnarson 14ára varð í 3.sæti í kúluvarpi með 11,37m
Ragúel Pino 11ára varð í 2.sæti í langstökki en hann stökk 4,38m
Í hlaupagreinunum var keppt í undanrásum og komust margir UFA keppendur í úrslit en úrslitahlaupin fara fram á morgun og á sunnudaginn. Setningarathöfn mótsins er í kvöld kl 20.