• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Unglingalandsmót UMFÍ 2015 á Akureyri

Það er stórfrétt og mjög gleðileg fyrir Akureyri að stjórn UMFÍ samþykkti á dögunum að Unglingalandsmótið 2015 skyldi haldið á Akureyri og ber UFA ábyrgð á framkvæmd þess. Akureyrarbær stóð að umsókninni ásamt UFA og fór bæjarstjórinn Eiríkur Björn Björgvinsson á stjórnarfund hjá UMFÍ ásamt formanni UFA til að kynna umsóknina og tala fyrir henni. Þetta er í þriðja skiptið sem UFA sækir um að halda mótið.

Það er því ljóst að hér verður mikil og ánægjuleg fjölskyldugleði ríkjandi um verslunarmannahelgina árið 2015, sem vonast er til að allir Akureyringar taki virkan þátt í.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA