47. Bikarkeppni FRÍ verður haldin á Þórsvelli á Akureyri um helgina. Keppni hefst kl. 18.00 föstudaginn 24. ágúst og stendur til kl. 20.00. Laugardaginn 25. ágúst hefst keppni kl. 11.00 og stendur til kl. 15.00. Reikna má með því að flest besta og efnilegasta frjálsíþróttafólk landsins mætist í þessari keppni. Hér er því einstakt tækifæri til að sjá það í keppni.
UFA og UMSE sjá um framkvæmd mótsins og hvetja allt áhugafólk um frjálsar íþróttir til að mæta og fylgjast með keppninni á frábærum velli okkar Akureyringa.Keppnin skiptist með eftirfarandi hætti milli daganna:
Föstudagur 24. ágúst
Karlar:100 m hl, 400 m hl, 1500 m hl, 400 m gr hl, 3000 m hindrunarhl, 4 x 100 m boðhl., langstökk , stangarstökk, kúluvarp og spjótkast
Konur:100 m hl, 400 m hl, 1500 m hl, 400 m gr hl, 4 x 100 m boðhl, hástökk, þrístökk,kúluvarp og spjótkast.
Laugardagur 25. ágúst:
Karlar:200 m hl, 800 m hl, 5000 m hl, 110 m gr hl, 1000 m boðhl , hástökk, þrístökk, kringlukast og sleggjukast.
Konur:200 m hl, 800 m hl, 3000 m hl, 100 m gr hl, 1000 m boðhl, stangarstökk, langstökk, kringlukast og sleggjukast