• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir

Samningur í höfn

Meistaraflokksráð UFA gekk nýlega frá styrktarsamningi við veitingastaðinn Besta bitann hér á Akureyri, fyrir Hafdísi Sigurðardóttur frjálsíþróttakonu hjá UFA. Samningurinn felst í því að Hafdís fær að borða á veitingastaðnum 4-5 sinnum í viku næsta árið.
Þetta er frábær stuðningur við Hafdísi hafds_styrktarsamn_400
og mun án efa koma sér vel fyrir hana. Hafdís er með yfir 1000 IAAF stig í þremur greinum þ.e. í 100, 200 og 400m hlaupum og hefur með árangri sínum verið á meðal fremsta frjálsíþróttafólks landsins, en hún á besta árangur ársins í öllum hlaupagreinunum og næstbesta árangur í langstökki. Hafdís er í landsliði Íslands 2012 í frjálsum íþróttum.
UFA þakkar þetta glæsilega framtak og óskar fyrirtækinu góðs gengis.
Á myndinni sjást Huld S.Ringsted og Haraldur Guðmundsson handsala samninginn við Hafdísi.
Lesa meira

Akureyrarmót - seinni dagur

Það var sama frábæra veðrið í dag, á seinni degi Akureyrarmótsins, þó aðeins rigndi á síðustu mínútum mótsins.
Stefán Sigvaldason UFA sigraði 200m hlaup 12-13 ára á frábærum tíma 26,09sek sem er nýtt Íslandsmet í þessum aldursflokki, Stefán sigraði einnig 80m hlaupið í gær á 10,36sek
Stefán Þór Jósefsson sigraði þrístökk karla, en hann stökk 12,88m og hann sigraði einnig 110m grindahlaup á 18,20sek
Fríða Björk Einarsdóttir í flokki 14-15ára sigraði tvær greinar í dag, sleggjukast en hún kastaði sleggjunni 37,14m og kúluvarp þar sem hún kastaði 9,91m
Hafdís Sigurðardóttir var fyrst í 200m hlaupi kvenna á 24,26sek en hún hljóp á 24,24sek í undanúrslitunum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson var í 1.sæti í 200m hlaupi karla á 21,98sek
Þorvaldur Ágúst Jónsson sigraði 200m hlaup 14-15ára á 25,87sek
Hilmar Örn Jórunnarson sigraði kúluvarp 14-15ára með kast upp á 11,58m
Sunna Rós Guðbergsdóttir stökk lengst í þrístökki 14-15ára er hún stökk 10,67m
Sigþór Gunnar Jónsson stökk 1,66m í hástökki 14-15ára og sigraði.
Heiðrún Dís Stefánsdóttir var í 1.sæti í 800m hlaupi kvenna á 2:28,15sek
Þorsteinn Helgi Guðmundsson sigraði spjótkast karla en hann kastaði spjótinu 49,83m
UFA sigraði heildarstigakeppni mótsins og einnig stigakeppnina í hverjum aldurflokki fyrir sig nema í aldursflokki 12-13ára þar bar lið UMSS sigur úr býtum.
UFA þakkar keppendum, starfsmönnum og áhorfendum fyrir skemmtilega samveru og keppni um helgina.

 

ak_mt_640 

Lesa meira

Akureyrarmet hjá Hafdísi

Skemmtileg og jöfn keppni var á fyrri degi Akureyrarmótsins sem fram fór á Þórsvelli í dag, í frábæru veðri. Mótið er hluti af mótaröð FRÍ sem er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem reiknað er með að fremsta frjálsíþróttafólk landsins sé í eldlínunni. Mótaröðin er jafnframt stigakeppni þar sem sigurvegarar hennar fá að lokum flugmiða í verðlaun. Verðlaun sem keppt er um eru peningaverðlaun, gjafabréf á veitingastaði, flugmiðar o.fl. Heildarverðmæti vinninga er 1.330.000 kr
Skráðir keppendur á Akureyrarmótinu eru tæplega 150 talsins frá 15 félögum og samböndum.
Hafdís Sigurðardóttir setti Akureyrarmet í langstökki í dag þegar hún stökk 6,01m hún sigraði einnig 400m hlaup kvenna á 54,83sek og 100m hlaupið á 12,12sek en í undanúrslitunum hljóp hún á 11,94sek.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 400m hlaup karla á 51,95sek, hann sigraði einnig 100m hlaup á 11,02sek sem er bæting hjá honum og 400m grindahlaupið á 59,64sek
Ragúel Pino í flokki 10-11 ára sigraði 4 greinar, hann stökk 1,33m í hástökki, hljóp 600m á 1:58,31sek hljóp síðan 60m á 9,01sek og stökk 4,17m í langstökki.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir stórbætti árangur sinn í hástökki er hún fór yfir 1,70m, hún sigraði einnig kúluvarp kvenna er hún kastaði kúlunni 11,06m en sá árangur er 3.besti árangur ársins hjá 19ára og yngri.
Þess má geta að Stefanía Valdimarsdóttir úr Breiðabliki náði lágmarki fyrir Evrópumót 22ára og yngri sem haldið verður í Finnlandi á næsta ári, þegar hún sigraði 400m grindahlaup kvenna á 60,32sek en það er bæting um 1/2 sek hjá henni.
Öll úrslit má sjá á mot.fri.is
Keppni hefst svo kl 9:30 á morgun.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA