• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

86. Meistaramót Íslands um helgina

Meistaramót Ísands það 86. í röðinni verður haldið á Laugardalsvellinum, um helgina. Mjög góð þátttaka er á mótinu og mun flest allt besta frjálsíþróttafólk landsins mæta til keppni. Tæplega 170 keppendur eru skráðir, frá 13 félögum og samböndum.
Keppendur UFA eru 11 talsins að þessu sinni.  Alls er keppt í 37 greinum karla og kvenna. Sigurvegari í hverri grein hlýtur Íslandsmeistaratitil en auk þess hljóta stigahæstu liðin í karla- og kvennaflokki sérstakar viðurkenningar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirrar konu og karls sem vinna bestu afrekin á mótinu samkv. alþjóðlegri stigatöflu. Búast má með mikilli keppni í mörgum greinum.
Þær Hafdís Sigurðardóttir UFA og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir ÍR munu t.d. án efa berjast um 1. sætið í spretthlaupunum nú sem áður og verður spennandi að sjá hvort Hafdís nær ekki að bæta enn betur tímana frá því í Gautaborg. Keppni hefst kl 11 á laugardaginn og mótinu lýkur seinni part sunnudags. 
Lesa meira

Frábćr árangur hjá Hafdísi í Gautaborg

Gautaborgarleikarnir, Heimsleikar unglinga, fara fram um helgina og er lokadagur mótsins á morgun. Alls eru þátttakendur um 3.500 frá 20 löndum. Nokkur fjöldi Íslendinga tók þátt í leikunum að venju.
Hafdís Sigurðardóttir UFA stóð sig frábærlega en hún gjörsigraði 400m hlaup kvenna, á sínum besta tíma, 54,16sek hún átti áður 55,42sek. og er þetta besti tími sem náðst hefur í 8 ár. Þess má geta að Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur frá 1997 er 52,83sek. 
Hún sigraði einnig 200m hlaupið með yfirburðum, hljóp á tímanum 24,12sek en átti áður best 24,66sek. Þessir tímar Hafdísar í bæði 400m og 200m hlaupum eru 4. bestu tímar íslenskrar konu frá upphafi. Í 100m hlaupi hljóp hún á 12,05sek í undanúrslitunum og á 12,10sek í úrslitunum og varð í 2.sæti, hún átti áður best 12,15sek. Þessir tímar eru bestu tímar ársins í þessum hlaupum. Hafdís keppti einnig í langstökki og hafnaði þar í 4.sæti en hún stökk 5,98m
Með þessum flotta árangri er Hafdís komin í fremstu raðir íslensks frjálsíþróttafólks.
Fyrir 54,16sek í 400m hlaupi hlýtur hún 1058 stig samkv. IAAF og 24,12sek í 200m hlaupi gefa henni 1048stig

Lesa meira

Kári Steinn og Arndís Ýr íslandsmeistarar í 10 km hlaupi

Meistaramót Íslands í 10 km götuhlaupi fór fram á Akureyri í kvöld. Margir af okkar bestu langhlaupurum voru mættir til leiks. Aðstæður voru góðar og tímar fyrstu manna glæsilegir. Kári Steinn Karlsson var aðeins 7 sekúndum frá því að bæta 29 ára gamalt íslandsmet Jóns Diðrikssonar og hljóp á 30:18 sem er einni sekúndu betri tími en besti tími hans hingað til. Annar karla var Þorbergur Ingi Jónsson sem hljóp á 32:14 sem er hans besti tími og áttundi besti tími íslendings í 10 km götuhlaupi. Og þriðji var Ármann Eydal Albertsson á 33:40. Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir á 36:55 sem er þriðji besti tími íslenskrar konu frá upphafi og í öðru sæti var Rannveig Oddsdóttir á 37:11 sem er sjötti besti tími íslenskrar konu, í þriðja sæti var Sigrún Björk Sigurðardóttir á 42:06.

Einnig var keppt í 5 km hlaupi og hálfmaraþoni. Í 5 km hlaupi karla sigraði Ívar Sigurbjörnsson á 18:58 og í kvennaflokki sigraði Selma Sigurðardóttir Malmquist á 21:33. Í hálfmaraþoni karla sigraði Arnar Pétursson á 1:13:54 og í kvennaflokki sigraði Ásdís Káradóttir á 1:36:54

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA