UFA konur á verðlaunapalli í Reykjavíkurmaraþoni

Sigríður Björg Einarsdóttir langhlaupari úr UFA var fyrst Íslenskra kvenna í mark í Reykjavíkurmaraþoni og er því íslandsmeistari í heilu maraþoni 2012. Sigríður hljóp á tímanum 3:25:46.

Rannveig Oddsdóttir náði einnig á verðlaunapall, en hún var önnur kvenna í hálfmaraþoni á tímanum 1:23:19 sem er hennar besti árangur til þessa.

Við óskum þeim stöllum til hamingju með góðan árangur í hlaupinu.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA