Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Meistaramót Íslands 11-14 ára innanhúss verður haldið nú um helgina. UFA sendir frækinn 12 manna hóp til keppni og verður gaman að fylgjast með árangri þeirra í mótinu. Hægt er að fylgjast með keppninni og árangri keppenda á mótaforriti FRÍ .
Aðalfundur UFA verður haldinn miðvikudaginn 27. febrúar í sal Brekkuskóla. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.00. Félagar, vinir og áhugafólk er hvatt til að mæta og taka þátt í fundinum. Eins og venjulega er reiknað með því að allir leggi eitthvað til á hlaðborð að gömlum ungmennafélaga sið. Drykkir verða í boði félagsins. Mætum, eigum góða stund og tökum sameiginlega þátt í að marka félaginu stefnu. Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
Hér má sjá nokkur myndbönd af Sifrinu sem sýna keppendur UFA. Smellið á greinina hjá nafni keppanda og þá ætti myndbandið að fara af stað.
Kolbeinn Höður í 4x400 og í 60m hlaupi - Bjarki í þrístökki og í stangarstökki 5m -Hafdís í 60m hlaupi og UFA stelpurnar í 4x400- Ásgerður Jana í kúlu .
Þetta eru þau myndbönd sem eru komin inn, en annars má sjá þessi myndbönd og mörg fleiri á þessari slóð http://www.youtube.com/user/silfridtv - Smellið á hana og njótið.