Fréttir

Ársskýrsla og ársreikningur 2012

Hér má sjá ársskýrslu 2012

Hér má sjá ársreikning 2012

Lesa meira

Ragúel Pino ađ gera góđa hluti á MÍ 11-14 ára

img_0625_640Eins og fram hefur komið fer Meistaramót Íslands 11-14 ára fram í Laugardalshöllinni um helgina. 11 keppendur frá UFA taka þátt nú og kepptu 9 þeirra í dag. Ragúel Pino 12 ára, náði mjög góðum árangri þegar hann sigraði 60m hlaupið á tímanum 8,54 sek og 800m hlaupið á 2:34,46 mín. Hann varð svo annar í langstökki með stökk upp á 4,53m. Jón Þorri Hermannsson 11 ára varð annar í langstökki með 4,02m og þá varð hann fjórði í 60m hlaupi og fimmti í 800m hlaupi. Af stúlkunum náði Sesselja Dís 14 ára, bestum árangri í dag þegar hún náði þriðja sæti í kúluvarpi.

Lesa meira

Tobbi međ brautarmet í Vetrarhlaupi

8465330765_943d2ab35a_b_640Þrjátíu hlauparar tóku þátt í Vetrarhlaupi í morgun, við ágætar aðstæður. Hálkan óðum að hverfa og brautin því með betra móti, hálkulaust á löngum köflum ;-) Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark á nýju brautarmeti 33:48 og sló þar með eigið met sem hann setti í október. Annar karla var Stefán Viðar Sigtryggsson á 38:38 og þriðji var Ögmundur Hrafn Magnússon á 39:14. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 39:24, sem er hennar besti tími í hlaupunum í vetur, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 44:59 og þriðja Sonja Sif Jóhannsdóttir á 45:11.

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA