• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Stefán Viðar og Sonja Sif fyrst í vetrarhlaupi

Síðasta Vetrarhlaup vetrarins fór fram á laugardag. Veðurguðirnir sáu til þess að hlauparar fengum vetrarfæri, en þó heldur mildara að þessu sinni en í flestum fyrri hlaupum vetrarins. Fyrstur í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 38:59, annar var Gunnar Atli Fríðuson á 41:19 og þriðji var Snæþór Aðalsteinsson á 41:42. Í kvennaflokki var Sonja Sif Jóhannsdóttir fyrst á 45:07, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 46:20 og þriðja var Guðrún Arngrímsdóttir á 48:15.

Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir fyrstu sætin í stigakeppni karla og kvenna og liðakeppni. Í stigakeppni karla bar Þorbergur Ingi Jónsson sigur úr bítum með 20 stigum, annar var Stefán Viðar Sigtryggsson með 13 stig og jafnir í þriðji sæti voru Snæþór Aðalsteinsson og Gunnar Atli Fríðuson með 9 sti. Í kvennaflokki sigraði Rannveig Oddsdóttir með 25 stig, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir með 20 stig og þriðja var Sigríður Björg Einarsdóttir með 19 stig. Hlutu þau íþróttafatnað frá Under Armour í verðlaun.

Í stigakeppni liða sigraði sveit Bjargs, skipuð þeim Rannveigu Oddsdóttur, Sonju Sif Jóhannsdóttur, Sigríði Einarsdóttur, Gunnari Atla Fríðusyni og Halldóri Arinbjarnarsyni og hlutu þau íþróttafatnað frá Craft að launum. Bjarg sveitin sigraði með 24 stigum, jafnar í örðu til þriðja sæti voru Víkingasveitin og Eyarskokk 1 með 16 stig.

Nokkrir heppnir þátttakendur hlutu síðan útdráttarverðlaun frá Halldóri Ólafssyni úr og skart og Nóa Síríus.

Hér má sjá úrslitin úr öllum hlaupunum og í stigakeppni einstaklinga og liða.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA