Flýtilyklar
Fréttir
Upptökur af hlaupum Kolbeins og Anítu á EM í gćr
Fyrir þá sem ekki höfðu tök á því að fylgjast með þeim Kolbeini og Anítu keppa í gær á EM 2013 , þá er hægt að fara inn á Playlists á síðunni smella á Göteborg 2013 EICH - Day 1 - Replays All Events og finna hlaupin þeirra eða fylgjast með allri keppni dagsins.
Lesa meira
Íslenski hópurinn á EM er mćttur til Gautaborgar
Íslensku keppendurnir á EM, þau Aníta Hinriksdóttir úr ÍR og Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA, mættu í dag ásamt fylgdarliði sínu til Gautaborgar. Ferðalagið gekk vel og fór hópurinn í skoðunarferð í keppnishöllina líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Aðstoðarmenn Anítu og Kolbeins í Gautaborg eru þau Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, og Unnur Sigurðardóttir sem er starfsmaður mótsins og aðstoðarmaður íslenska hópsins. Unnur er búsett í Växjö.
Keppnin hefst í fyrramálið kl 9:00 að íslenskum tíma. Kolbeinn hefur keppni síðan kl 11 og Aníta kl 16. Spennandi verður að fylgjast með þessu unga og efnilega fólki stíga sín fyrstu skref á stórmóti fullorðinna.

