Vel sóttur hlauparafundur

Stefnumótunar- og aðalfundur langhlaupa- og þríþrautardeildar UFA í gærkvöldi var vel sóttur og náðust góðar umræður um uppbyggingu skokk- og hlaupaíþróttarinnar í bænum. Ný stjórn mun móta áfram þær hugmyndir sem kynntar voru og ræddar á fundinum.

Ný stjórn var kjörin, úr stjórn gengu Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Ingibjörg Halldórsdóttir. Í þeirra stað komu Sævar Helgason og Guðrún Arngrímsdóttir inn í stjórn og Rannveig Oddsdóttir og Elías Gíslason sitja áfram.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA