Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA 2011-2012 fór fram við kjöraðstæður í morgun. Rúmlega þrjátíu hlauparar mættu til leiks og tóku sprettinn í vorblíðunni. Stefán Viðar Sigtryggsson kom að vanda fyrstur í mark að þessu sinni á tímanum 37:47 sem er besti tími vetrarins. Steinsnar á eftir Stefnáni kom Rannveig Oddsdóttir í mark á tímanum 38:07 og bætti þar með eigið brautarmet frá október 2007 um rúma mínútu. Annar karla var Snæþór Aðalsteinsson á 40:17 og þriðji var Halldór Halldórsson á 42:06, önnur kvenna var Sigríður Einarsdóttir á 43:06 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 43:17. Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir stigakeppni einstaklinga og liða. Í stigakeppni karla sigraði Stefán Viðar, annar var Snævar og þriðji Halldór Arinbjarnarson, í stigakeppni kvenna var Rannveig í fyrsta sæti, Sigríður í öðru sæti og Sonja í þriðja sæti og hlutu þau vegleg verðlaun frá Under Armour. Í liðakeppninni bar Víkingasveitin sigur úr bítum en hana skipuðu þeir Stefán Viðar og feðgarnir Aðalsteinn, Snævar og Hlynur frá Víkingavatni í Kelduhverfi. Styrktaraðilar hlaupsins, Bjarg, Altis, Craft, Halldór Ólafsson úr og skart ehf, Nói Síríus og Bautinn gáfu útdráttarverðlaun sem dregin voru út að hlaupinu loknu.
Hér má sjá úrslit allra hlaupanna.