• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Verkaskipting stjórnar

Ný stjórn hefur nú skipt með sér verkum. Gunnar Gíslason situr áfram sem formaður, Elfar Eiðsson er varaformaður, Þröstur Már Pálmason gjaldkeri, Rannveig Oddsdóttir ritari og Gyða Árnadóttir, Theódóra Kristjánsdóttir og Þórólfur Sveinsson meðstjórnendur.
Lesa meira

Kökubasar á morgun laugardag 10. mars í Bónus Naustahverfi

Meistaraflokkur UFA heldur kökubasar til styrktar æfingaferð sinni til Portúgal um páskana. Hvetjum ykkur til að styrkja þau og fá ykkur úrvals bakkelsi með kaffinu. Salan hefst kl. 12 og stendur yfir meðan birgðir endast.
Lesa meira

Íţróttabókin komin út

Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ gaf Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands út bók sem ber heitið „Íþróttabókin - ÍSÍ saga og samfélag í 100 ár”.  Með útgáfu hennar er leitast við að geyma í senn sögu sambandsins og merka atburði í íslensku íþróttalífi.  Ákveðið var að fara nýja leið við upprifjun sögunnar og leggja aðaláhersluna á að fjalla um þau víðtæku áhrif sem íþróttastarfið og íþróttahreyfingin hefur haft á íslenskt samfélag í gegnum tíðina.

Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur ritstýrði verkinu.  Fáir Íslendingar hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar. Til liðs við Steinar voru fengnir nokkrir höfundar sem allir eru kunnir íþróttaáhugamenn, Ellert B. Schram, Ágúst Ásgeirsson, Jón M. Ívarsson, Steinþór Guðbjartsson, Björn Vigni Sigurpálsson og Þorgrím Þráinsson.  Í ritnefnd bókarinnar voru Stefán S. Konráðsson formaður, Magnús Oddsson, Jón Gestur Viggósson og Unnur Stefánsdóttir. Jón M. Ívarsson annaðist myndaval og útvegun mynda í bókina. Skönnun mynda var í höndum Brynjars Gunnarssonar ljósmyndara. Prentsmiðjan Oddi sá um umbrot og prentun en Árni Jörgensen var útlitshönnuður bókarinnar.

Bókin er til sölu í Bókabúð Máls og Menningar, Laugavegi 18 og kostar 7.900 krónur.  Við ritun bókarinnar kom í ljós að ekki kæmist allt efnið fyrir í bókinni. Seinna verður það efni aðgengilegt á heimasiðu ÍSÍ.

rttabkin_w300_120
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA