Meistaramót Íslands í fjölþrautum fór fram við bestu hugsanlegu aðstæður í hita og sól á Selfossi nú um sl helgi. UFA sendi 3 keppendur á mótið sem var samkvæmt venju fámennt, enda eins og þekkt er fáir sem leggja sig eftir svo erfiðri keppni sem fjölþrautirnar eru.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir stórbætti árangur sinn í flokki 17-18 ára stúlkna er hún varð Íslandsmeistari með um 600 stiga bætingu. Hún hlaut 4694 stig og tryggði sér með því þátttöku á Norðurlandameistaramóti í fjölþrautum 16-17. júní í Sandnes í Noregi.
Rakel Ósk Björnsdóttir vann silfurverðlaun í sjöþraut kvenna með 3603 stig í sinni fyrstu þraut og Stefán Þór Jósefsson stórbætti sig, hlaut 5304 stig og fékk silfur í flokki 18-19 ára pilta.
Næsta mót hjá meistaraflokki er fimmtarþraut UMSS á Sauðárkróki 16. júní fyrir hluta iðkenda og svo Sumarleikar HSÞ á Laugum 23.-24. júní en þar taka væntanlega allir úr meistaraflokki þátt ásamt yngri flokkunum sem vanalega hafa fjölmennt ásamt fjölskyldum á þetta skemmtilega mót.