Hafdís Sigurðardóttir keppti á alþjóðlegu móti í Florö í Noregi á laugardaginn. Árangur Hafdísar var frábær en hún stökk 6,14m í langstökkinu og varð í 4.sæti í jafnri keppni um 2.-4.sætið. Hún var svo í íslensku boðhlaupssveitinni í 4x400m hlaupi og komu þær í mark á tímanum 3:44,69sek og urðu í 3.sæti, þetta er besti tími hjá íslenskri boðhlaupssveit kvenna í 15 ár. Auk Hafdísar voru þær Aníta Hinriksdóttir ÍR, Fjóla Signý Hannesdóttir HSK og Stefanía Valdimarsdóttir úr Breiðabliki í sveitinni.