Næstkomandi mánudag 11. júní kl. 17:00-19:00 ætlum við að gera okkur glaðan dag og halda UFA daginn eins og gert hefur verið undanfarin vor. Gleðin mun fara fram á Þórsvellinum, farið verður í leiki og boðið upp á grillaðar pylsur. Tekið verður við skráningu nýrra iðkenda og greiðslu æfingagjalda og ýmiss UFA varningur verður til sölu (buff, bolir o.fl.) einnig geta iðkendur nýtt tækifærið til að skipta á gaddaskóm og æfingafatnaði. Við hvetjum gamla og nýja iðkendur til að mæta og taka þátt í gleðinni.
Stjórnin