• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Sumaræfingar

Æfingar hefjast samkvæmt æfingatöflu sumarsins næstkomandi mánudag 4. júní.

 Æfingar í sumar verða sem hér segir:

  Mánudagar Þriðjudagar Miðvikudagar Fimmtudagar  Föstudagar
7 ára og yngri 15:30-16:30   15:30-16:30 15:30-16:30  
8-10 ára 14:30-15:30   14:30-15:30 14:30-15:30  
11-12 ára 16:30-18:00 16:30-18:00 16:30-18:00 16:30-18:00  
13-15 ára  16:30-18:00 16:30-18:00 16:30-18:00 16:30-18:00  
Meistaraflokkur 18:00-20:00 18:00-20:00 18:00-20:00 18:00-20:00  18:00-20:00

Við bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomna. Þjálfarar taka við nýskráningum á æfingum.

Nánari upplýsingar um æfingar yngri flokka veitir Unnar Vilhjálmsson í síma 8684547

Nánari upplýsingar um æfingar meistaraflokks veitir Gísli Sigurðsson í síma 8919196

Lesa meira

Maraþonboðhlaup til styrktar ólympíuförum

Næstkomandi þriðjudag, 5. júní, fer fram hlaup til styrktar Ólympíuhópi Frjálsíþróttasambandsins á nokkrum stöðum á landinu, þar á meðal á Akureyri. Keppt verður í hálfmaraþonhlaupi, en sami 3 km hringur hlaupinn sjö sinnum og geta tveir til sjö skipt með sér vegalengdinni. Hlaupið verður um innbæinn og hefst hlaupið á planinu hjá leikhúsinu. Vegleg verðlaun til sigurvegara í einstaklings- og liðakeppni auk glæsilegra útdráttarverðlauna. 

Nánari upplýsingar hér og á hlaupasíðuni (hlaup.is) en þar fer skráning einnig fram.

Lesa meira

Breytingar á æfingatímum

Nú er sumarið komið og því færum við allar æfingar út á Þórsvöll. Æfingatímar breytast jafnframt lítið eitt. Næstu tvær vikur, þar til sumartaflan tekur gildi mánudaginn 4. júní verða æfingar fyrir 10 ára og yngri á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00-17:00 og æfingar fyrir 11-14 ára verða kl. 17:00-18:00 alla virka daga nema þriðjudaga. Við minnum jafnframt á að út maí bjóðum við upp á fríar æfingar fyrir nýja iðkendur. Og hvetjum við alla áhugasama til að nýta tækifærið til að koma og prófa.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA