Kolbeinn Höður Gunnarsson keppir nú um helgina á frjálsíþróttamóti ungmenna í Mannheim í Þýskalandi. Sex íslenskum íþróttamönnum var boðið á þetta mót og keppir Kolbeinn í 200m og 400m hlaupum. Mót þetta er með þeim stærstu í Evrópu en búist er við 300 erlendum keppendum auk 200 heimamanna. Allir íslensku keppendurnir stefna á að ná lágmörkum fyrir HM 19 ára og yngri sem haldið verður í Barcelona um miðjan júlí.
Kolbeinn Höður hljóp 400m á tímanum 49,27sek sem er persónuleg bæting hjá honum. Á morgun keppir Kolbeinn svo í 200m hlaupi.
Kolbeinn Höður hljóp 400m á tímanum 49,27sek sem er persónuleg bæting hjá honum. Á morgun keppir Kolbeinn svo í 200m hlaupi.