Skráning er hafin í Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks sem fram fer fimmtudaginn 5. júlí næstkomandi. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt í hlaupinu en boðið verður upp á þrjár vegalengdir (5 km, 10 km, hálfmaraþon) svo allir ættu að geta fundið vegalengd við hæfi. Skráning fer fram á hlaupasíðunni en einnig verður hægt að skrá sig í Átaki daginn fyrir hlaup. Við vekjum athygli á því að í 5 og 10 km hlaupi er keppt í aldursflokki 15 ára og yngri og vonumst við til þess að það verði börnum og unglingum hvati til að mæta í hlaupið.
Að þessu sinni er 10 km hlaupið jafnframt Meistaramót Íslansd í 10 km götuhlaupi og er von á sterkum hlaupurum í það og aldrei að vita nema nær 30 ára gamalt íslandsmet Jóns Diðrikssonar falli.