• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Mót haldið 16.júní

Þann 16. júní var haldið innanfélagsmót hjá UFA. Helstu úrslit voru að Hafdís Sigurðardóttir sigraði í 60m hlaupi á 7,76sek, 100m hlaupi á 12,06sek og stökk 6,06m í langstökki,en Hafdís stökk á móti á Sauðárkróki í sl viku einnig yfir 6m stökk þá 6,18m en meðvindur var of mikill. Þess má geta að Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur er 6,30m
Rakel Ósk Björnsdóttir sigraði í kúluvarpi, kastaði 10,88m og einnig í stangarstökki, stökk 2,90m
Kolbeinn Höður Gunnarsson og Örn Dúi Kristjánsson urðu jafnir í 60m hlaupi á 7,27sek og Kolbeinn varð fyrstur í 100m hlaupi á 11,17sek
Stefán Þór Jósefsson vann stangarstökk karla en hann stökk 3,60m
Sesselja Dís Heiðarsdóttir sigraði kúluvarp 13 ára stúlkna kastaði kúlunni 10,82m
Kristófer Sigmarsson sigraði svo langstökk karla, stökk  5,34m


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA