• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Kolbeinn Höður keppir í Þýskalandi

Kolbeinn Höður Gunnarsson keppir nú um helgina á frjálsíþróttamóti ungmenna í Mannheim í Þýskalandi. Sex íslenskum íþróttamönnum var boðið á þetta mót og keppir Kolbeinn í 200m og 400m hlaupum. Mót þetta er með þeim stærstu í Evrópu en búist er við 300 erlendum keppendum auk 200 heimamanna. Allir íslensku keppendurnir stefna á að ná lágmörkum fyrir HM 19 ára og yngri sem haldið verður í Barcelona um miðjan júlí.

Kolbeinn Höður hljóp 400m á tímanum 49,27sek sem er persónuleg bæting hjá honum. Á morgun keppir Kolbeinn svo í 200m hlaupi.
Lesa meira

Skráning hafin í Akureyrarhlaup

Skráning er hafin í Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks sem fram fer fimmtudaginn 5. júlí næstkomandi. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt í hlaupinu en boðið verður upp á þrjár vegalengdir (5 km, 10 km, hálfmaraþon) svo allir ættu að geta fundið vegalengd við hæfi. Skráning fer fram á hlaupasíðunni en einnig verður hægt að skrá sig í Átaki daginn fyrir hlaup. Við vekjum athygli á því að í 5 og 10 km hlaupi er keppt í aldursflokki 15 ára og yngri og vonumst við til þess að það verði börnum og unglingum hvati til að mæta í hlaupið.

Að þessu sinni er 10 km hlaupið jafnframt Meistaramót Íslansd í 10 km götuhlaupi og er von á sterkum hlaupurum í það og aldrei að vita nema nær 30 ára gamalt íslandsmet Jóns Diðrikssonar falli.

Lesa meira

Mót haldið 16.júní

Þann 16. júní var haldið innanfélagsmót hjá UFA. Helstu úrslit voru að Hafdís Sigurðardóttir sigraði í 60m hlaupi á 7,76sek, 100m hlaupi á 12,06sek og stökk 6,06m í langstökki,en Hafdís stökk á móti á Sauðárkróki í sl viku einnig yfir 6m stökk þá 6,18m en meðvindur var of mikill. Þess má geta að Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur er 6,30m
Rakel Ósk Björnsdóttir sigraði í kúluvarpi, kastaði 10,88m og einnig í stangarstökki, stökk 2,90m
Kolbeinn Höður Gunnarsson og Örn Dúi Kristjánsson urðu jafnir í 60m hlaupi á 7,27sek og Kolbeinn varð fyrstur í 100m hlaupi á 11,17sek
Stefán Þór Jósefsson vann stangarstökk karla en hann stökk 3,60m
Sesselja Dís Heiðarsdóttir sigraði kúluvarp 13 ára stúlkna kastaði kúlunni 10,82m
Kristófer Sigmarsson sigraði svo langstökk karla, stökk  5,34m

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA