• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Akureyrarmet hjá Hafdísi

Skemmtileg og jöfn keppni var á fyrri degi Akureyrarmótsins sem fram fór á Þórsvelli í dag, í frábæru veðri. Mótið er hluti af mótaröð FRÍ sem er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem reiknað er með að fremsta frjálsíþróttafólk landsins sé í eldlínunni. Mótaröðin er jafnframt stigakeppni þar sem sigurvegarar hennar fá að lokum flugmiða í verðlaun. Verðlaun sem keppt er um eru peningaverðlaun, gjafabréf á veitingastaði, flugmiðar o.fl. Heildarverðmæti vinninga er 1.330.000 kr
Skráðir keppendur á Akureyrarmótinu eru tæplega 150 talsins frá 15 félögum og samböndum.
Hafdís Sigurðardóttir setti Akureyrarmet í langstökki í dag þegar hún stökk 6,01m hún sigraði einnig 400m hlaup kvenna á 54,83sek og 100m hlaupið á 12,12sek en í undanúrslitunum hljóp hún á 11,94sek.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 400m hlaup karla á 51,95sek, hann sigraði einnig 100m hlaup á 11,02sek sem er bæting hjá honum og 400m grindahlaupið á 59,64sek
Ragúel Pino í flokki 10-11 ára sigraði 4 greinar, hann stökk 1,33m í hástökki, hljóp 600m á 1:58,31sek hljóp síðan 60m á 9,01sek og stökk 4,17m í langstökki.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir stórbætti árangur sinn í hástökki er hún fór yfir 1,70m, hún sigraði einnig kúluvarp kvenna er hún kastaði kúlunni 11,06m en sá árangur er 3.besti árangur ársins hjá 19ára og yngri.
Þess má geta að Stefanía Valdimarsdóttir úr Breiðabliki náði lágmarki fyrir Evrópumót 22ára og yngri sem haldið verður í Finnlandi á næsta ári, þegar hún sigraði 400m grindahlaup kvenna á 60,32sek en það er bæting um 1/2 sek hjá henni.
Öll úrslit má sjá á mot.fri.is
Keppni hefst svo kl 9:30 á morgun.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA