Það var sama frábæra veðrið í dag, á seinni degi Akureyrarmótsins, þó aðeins rigndi á síðustu mínútum mótsins.
Stefán Sigvaldason UFA sigraði 200m hlaup 12-13 ára á frábærum tíma 26,09sek sem er nýtt Íslandsmet í þessum aldursflokki, Stefán sigraði einnig 80m hlaupið í gær á 10,36sek
Stefán Þór Jósefsson sigraði þrístökk karla, en hann stökk 12,88m og hann sigraði einnig 110m grindahlaup á 18,20sek
Fríða Björk Einarsdóttir í flokki 14-15ára sigraði tvær greinar í dag, sleggjukast en hún kastaði sleggjunni 37,14m og kúluvarp þar sem hún kastaði 9,91m
Hafdís Sigurðardóttir var fyrst í 200m hlaupi kvenna á 24,26sek en hún hljóp á 24,24sek í undanúrslitunum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson var í 1.sæti í 200m hlaupi karla á 21,98sek
Þorvaldur Ágúst Jónsson sigraði 200m hlaup 14-15ára á 25,87sek
Hilmar Örn Jórunnarson sigraði kúluvarp 14-15ára með kast upp á 11,58m
Sunna Rós Guðbergsdóttir stökk lengst í þrístökki 14-15ára er hún stökk 10,67m
Sigþór Gunnar Jónsson stökk 1,66m í hástökki 14-15ára og sigraði.
Heiðrún Dís Stefánsdóttir var í 1.sæti í 800m hlaupi kvenna á 2:28,15sek
Þorsteinn Helgi Guðmundsson sigraði spjótkast karla en hann kastaði spjótinu 49,83m
UFA sigraði heildarstigakeppni mótsins og einnig stigakeppnina í hverjum aldurflokki fyrir sig nema í aldursflokki 12-13ára þar bar lið UMSS sigur úr býtum.
UFA þakkar keppendum, starfsmönnum og áhorfendum fyrir skemmtilega samveru og keppni um helgina.