Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir hefur nú lokið keppni á fyrri degi í sjöþrautinni á Norðurlandamótinu í fjölþrautum í Sandnes í Noregi. Henni hefur gengið frábærlega vel í dag, er í 6.sæti í sínum aldursflokki af 11 keppendum, með 2.777 stig eftir fyrri dag.
Árangur hennar í dag var sem hér segir; 100m grindahlaup 16,21sek
hástökk 1,64m, kúluvarp 12,06m og 200m hlaup 27,88sek.
Með þessum árangri er hún að bæta sig í öllum greinunum nema 200m hlaupinu, sem er frábært hjá henni.
Ásgerður Jana keppir í flokki 17 ára og yngri en hún er 16 ára. Á morgun keppir hún svo í langstökki, spjótkasti og 800m hlaupi.
Þeir sem pöntuðu keppnisbúninga í vetur geta nálgast þá til Maju (Tjarnarlundi 9k) eða á vellinum á mánudaginn klukkan 18:00. Til þess að fá búninginn sinn verður að greiða fyrir hann á staðnum eða millifæra á reikning félagsins 0566-26-7701 kt. 520692-2589 og senda staðfestingu á netfangið majaaldis@gmail.com. Búningarnir í þessari pöntun kostuðu 8500
Þeir sem vilja panta sér búning geta haft samband við Maju, netfangið majaaldis@gmail.com eða í síma 865-7224. Verðið var 8500 og hef ég engar upplýsingar um að það hafi hækkað. Ég mund senda inn pöntun í byrjun næstu viku.
Kveðja
Maja