Meistaraflokksráð UFA gekk nýlega frá styrktarsamningi við veitingastaðinn Besta bitann hér á Akureyri, fyrir Hafdísi Sigurðardóttur frjálsíþróttakonu hjá UFA. Samningurinn felst í því að Hafdís fær að borða á veitingastaðnum 4-5 sinnum í viku næsta árið.
Þetta er frábær stuðningur við Hafdísi
og mun án efa koma sér vel fyrir hana. Hafdís er með yfir 1000 IAAF stig í þremur greinum þ.e. í 100, 200 og 400m hlaupum og hefur með árangri sínum verið á meðal fremsta frjálsíþróttafólks landsins, en hún á besta árangur ársins í öllum hlaupagreinunum og næstbesta árangur í langstökki. Hafdís er í landsliði Íslands 2012 í frjálsum íþróttum.
UFA þakkar þetta glæsilega framtak og óskar fyrirtækinu góðs gengis.
Á myndinni sjást Huld S.Ringsted og Haraldur Guðmundsson handsala samninginn við Hafdísi.