• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Aldursflokkamót UMSE á Þórsvelli

UMSE býður til frjálsíþróttamóts á Þórsvelli á Akureyri, 29.-30. ágúst. Mótið er opið öllum, en einnig keppa aðildarfélög UMSE til stiga á mótinu. Mótið hefst kl. 17:00 báða dagana. Þeir UFA félagar sem hafa hug á því að taka þátt í mótinu er bent á að senda upplýsingar um sig og í hvaða greinum þeir vilja taka þátt á netfangið gg@akmennt.is fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 28. ágúst. Alla flokka og greinar má sjá á mótaforriti FRÍ. Þátttökugjöld eru 750 kr. í þrautabraut, 9 ára og yngri og 500 kr á grein fyrir 10 ára og eldri. Þeir UFA félagar sem ætla að taka þátt eru beðnir um að leggja þátttökugjöldin inn á reikning UFA og setja í skýringu nafn og mót.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA