Noðrurland, sameinað lið UFA, UMSE, UMSS og HSÞ, varð í þriðja sæti í 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fór á Þórsvelli um helgina. Þetta var frábær árangur hjá liðinu og munaði ekki nema 11,5 stigum á Norðurlandi og FH sem varð í öðru sæti. ÍR vann keppnina hins vegar mjög sannfærandi. Annars urðu úrslit sem hér segir:
Í kvennaflokki voru stigaúrslit þessi:
1. ÍR 87 stig
2. Norðurland 77,5
3. FH 76
4. HSK 64,5
5. Breiðablik 55
Í karlaflokki voru úrslit þessi:
1. ÍR 97 stig
2. FH 83
3. Norðurl. 70
4. Breiðablik 66
5. HSK 60
Sameiginleg stig
1. ÍR 184 stig
2. FH 159
3. Norðurl. 147,5
4. HSK 124,5
5. Breiðablik 121
Öll úrslit mótsins má sjá á Mótaforriti FRÍ.