Ólympíufararnir Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH verða meðal keppenda á 47. Bikarkeppni FRÍ sem fram fer á Þórsvelli um helgina. Þá liggur fyrir að auk þeirra eru nánast allt besta og efnilegasta frjálsíþróttafólkið okkar meðal keppenda. Það verður fróðlegt að sjá hvað Hafdís Sigurðardóttir gerir í langstökki, en það bíða margir eftir stóra stökkinu hennar. Hugsanlega kemur það um helgina. Komið og fylgist með. Nóg er plássið í stúkunni.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.