Flýtilyklar
Fréttir
Rannveig götuhlaupari ársins 2012 í kvennaflokki
Á uppskeruhátíð FRÍ, 27.okt. sl. voru útnefndir götuhlauparar ársins 2012. Almennings- og víðavangshlaupanefnd FRÍ stóð fyrir valinu á íþróttamönnunum.
Götuhlaupari ársins í kvennaflokki er Rannveig Oddsdóttir UFA.
Rannveig náði næst besta tíma íslenskrar konu frá upphafi í maraþonhlaupi þegar hún hljóp á 2:52:39 í Berlín 30.sept sl.
Hún varð einnig önnur í hálfmaraþoninu í ágúst er hún hljóp á 1:23:14 sem er hennar besti tími í hálfu maraþoni.
Götuhlaupari ársins í karlaflokki er Kári Steinn Karlsson í Breiðabliki.
Lesa meira

IAAF viđurkenningar afhentar á uppskeruhátíđ FRÍ
Í tilefni 100 ára afmælis Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF, var FRÍ falið að úthluta viðurkenningum til 30 einstaklinga hér á landi, fyrir framlag þeirra til frjálsra íþrótta. Afhendingin fór fram á uppskeruhátíð FRÍ laugardaginn 27.okt.sl.
Það er gaman að geta þess að meðal þeirra sem hlutu sérstakt viðurkenningaskjal IAAF voru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Unnar Vilhjálmsson og Guðmundur Víðir Gunnlaugsson og á meðal þeirra sem hlutu sérstakan minnispening IAAF var Gísli Sigurðsson.
Félagið óskar þeim til hamingju með þennan heiður.

Bjartmar og Rannveig fyrst í vetrarhlaupinu
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun. Tæplega þrjátíu manns mættu til leiks og hlupu 10 km. Veður var hagstætt, en ansi sleipt fyrri hluta leiðarinnar. Bjartmar Örnuson kom fyrstur í mark á 39:35 og Rannveig Oddsdóttir önnur á 39:42. Annar karla var Snæþór Aðalsteinsson á 41:23 og þriðji var Trausti Hannesson á 41:24. Önnur kona í mark var Sigríður Björg Einarsdóttir á 47:04 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 47:45. Í liðakeppninni var lið Bjargs með besta samanlagða tíman, Víkingasveitin með annan besta tímann og Eyrarskokk 1 með þriðja besta tímann. Hér má sjá öll úrslitin.
Lesa meira