Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Fyrsta vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 27. október. Að venju verður hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Keppt er í stigakeppni einstaklinga og liða og er til mikils að vinna því veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigur í lok hlaupaseríunnar í vor auk útdráttarverðlauna. Bestu verðlaun hlaupanna eru þó án efa aðhaldið sem þau veita hlaupurum yfir vetrartímann og góðu stundirnar í pottinum á Bjargi eftir hlaupin og hvetjum við alla til hlaupara bæjarins til að taka þátt í þessari skemmtilegu seríu með okkur.
Nánari upplýsingar um hlaupin er að finna hér.
Styrktaraðilar hlaupsins eru líkt og undanfarin ár: Bjarg líkamsrækt, Halldór Ólafsson úr og skart ehf, Craft, Grok og Nói Síríus.
Ungmennafélag Íslands, KFUM og KFUK, Bandalag íslenskra skáta og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa undanfarin misseri staðið fyrir Verndum þau – námskeiðum undir merkjum Æskulýðsvettvangsins. Námskeiðin eru byggð á efni bókarinnar, Verndum þau, og fjalla um hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og unglingum. Námskeiðin eru ætluð öllum þeim sem starfa með börnum og unglingum hjá sveitarfélögum, íþróttafélögum, æskulýðsfélögum og öðrum þeim sem áhuga hafa. Æskulýðsvettvangurinn gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan vettvangsins sæki námskeiðið. Næsta námskeið verður haldið 24. október kl. 17:30 – 20:30 í Félagsborg á Hrafnagili, Akureyri. Skráningar í síma 868-3820 eða hjá umse@umse.is