Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Gamlárshlaup

Gamlárshlaup og ganga UFA fer fram á gamlársdag. Boðið er upp á tvær vegalengdir 5 km. og 10 km.
10 km. ganga fer af stað kl. 10:00 en 10 km. hlaup og 5 km. hlaup og ganga kl. 11:00

Búningakeppni
Keppt er um best klædda liðið og geta 2-5 verið saman í liði.

Aðstaða, veitingar og verðlaun
Rás- og endamark er við líkamsræktarstöðina Bjarg.
Hlauparar geta nýtt sér búningsaðstöðu á Bjargi, sturtur og heita potta.
Að hlaupið loknu verður boðið upp á súpu frá RUB23.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu sætin í 10 og 5 km hlaupi og í búningakeppninni og dregin út verðlaun frá Bjargi og Björgunarsveitinni Súlum og Nettó.

Skráning og þátttökugjald
Skráning fer fram á staðnum frá kl. 9:30 á keppnisdag.
Þátttökugjald er kr. 1500 fyrir 16 ára og eldri en kr. 500 fyrir börn, veittur er fjölskylduafsláttur (foreldrar og börn) þannig að fjölskylda greiðir ekki meira en kr. 3000. Allur ágóði af hlaupinu rennur til UFA og að þessu sinni fer helmingur ágóðans í ferðasjóð meistaraflokks sem safnar fyrir æfingaferð um páska.

Hlaupaleið
Leiðin í 10 km hlaupinu er sú sama og hlaupin hefur verið undanfarin ár og hlaupin er í vetrarhlaupunum. Fimm km leiðinn er ný (og km lengri en verið hefur). Báðar leiðirnar voru mældar í sumar af löggildum mælingamanni.

10 km leiðin: Hlaupið upp Austursíðu inn á malarveg sem liggur að Vestursíðu, niður Vestursíðu, eftir göngustíg í gegnum Giljahverfi, Hlíðarbraut, Skógarlundur, Mýrarvegur, Hringteigur (hlaupið á gangstéttinni), Mímisbraut, Mýrarvegur, Skógarlundur, Hlíðarbraut, Austursíða, Bugðusíða að Bjargi.

Hér má sjá kort af 10 km leiðinni.

5 km leiðin: Rásmark er við Glerárkirkju. Leiðin fylgir 10 km leiðinni fyrri hluta hlaups (upp Austursíðu inn á malarveg sem liggur að Vestursíðu, niður Vestursíðu, eftir göngustíg í gegnum Giljahverfi) en ekki er farið yfir Hlíðarbrautina heldur beygt til vinstri þegar komið er niður göngustíginn og hlaupið meðfram Hlíðarbrautinni að Austursíðu, upp Austursíðu og eftir Bugðusíðu að Bjargi.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning