• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Fréttir

Rannveig á góđum tíma í Berlín

Rannveig Oddsdóttir langhlaupari úr UFA átti gott hlaup í Berlínarmaraþoni í morgun. Rannveig hljóp á sínum besta tíma til þessa 2:52:39 sem er annar besti tími íslenskrar konu í maraþonhlaupi. Rannveig var 24 kona í mark í hlaupinu og fimmta í sínum aldursflokki.
Lesa meira

Úrslit í hausthlaupi

Hausthlaup UFA fór fram í kvöld í stilltu og fallegu haustveðri. Tæplega 30 hlauparar tóku þátt og skeiðuðu 10 km hver á sínum hraða. Stefán Viðar Sigtryggsson var fyrstur karla í mark á 37:13, annar var Ragnar Sigurgeirsson á 37:53 og þriðji var Trausti Hannesson á 39:02. Í kvennaflokki sigraði Guðrún Nýbjörg Gunnbjörnsdóttir á 45:07, önnur var Bryndís María Davíðsdóttir á 47:33 og þriðja var Hanna Þórey Guðmundsdóttir á 50:00. Þess má þó geta að hlauparinn fótfrái Þorbergur Ingi Jónsson tók 20 km upphitun fyrir hlaup og varð aðeins of seinn í startið en skeiðaði fram úr öllum öðrum hlaupurum og þeyttist í gegnum markið 35 mín og 22 sek eftir að klukkan var sett í gang. Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

Lesa meira

Hausthlaup UFA

Fimmtudaginn 20. september stendur Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA fyrir 10 km keppnishlaupi. Hlaupið verður frá Átaki við Strandgötu, sömu leið og í Akureyrarhlaupi (hringur um eyrina og síðan suður eftir Drottningarbraut fram að flugvelli þar sem snúið er við). Skráning fer fram á staðnum frá kl. 17:30 og er þáttökugjald kr. 500. Hlaupið verður síðan ræst kl. 18:00. Hlauparar geta nýtt sér búningsaðstöðu, sturtur og heita potta í Átaki.
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA