Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Rúmlega sextíu manns tóku þátt í Gamlárshlaupi og göngu UFA í morgun við frekar ævintýralegar aðstæður. Klofa þurfti snjó upp undir mitti á hluta leiðarinnar, glerhált var á götum og göngustígum og blés nokkuð af norðri með hríðaréljum. Allt gekk þó vel og skiluðu allir sér heilir í mark eftir hressandi útiveru. Að þessu sinni var því einstaklega ljúft að gæða sér á heitri súpu frá RUB23 að hlaupi loknu, ylja sér í heitu pottunum á Bjargi auk þess sem nokkrir þátttakendur fór heim með sjóðheit útdráttarverðlaun frá Bjargi og flugeldasölu Björgunarsveitanna.
Í 5 km hlaupi kom Ólafur Björnsson fyrstur í mark á 25:03, annar var Egill Bjarni Gíslason á 28:13 og þriðji var Bjarni Aðalsteinsson á 28:53. Fyrst kvenna var Elín Hjaltadóttir á 32:19, önnur var Elín Margrét Stefánsdóttir á 38:26 og þriðja var Elsa Sigmundsdóttir á 38:26.
Í 10 km hlaupi kom Þorbergur Ingi Jónsson fyrstur í mark á 36:24, annar var Daniel Chuchala á 37:51 og þriðji var Ívar Sigurbjörnsson á 43:13. Rannveig Oddsdóttir var fyrst kvenna á 45:43, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 50:39 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir 52:07.
Þó veður og færð sé ekki alveg eins og best verður á kosið verður Gamlárshlaup og ganga UFA haldið í dag. Færð hefur ekki spillst að ráði og veðrið er betra en það lítur út fyrir að vera þegar horft er út um gluggann. Hressandi hlaupaveður og það verður gott að ylja sér í heitum pottum á Bjargi og gæða sér á heitri súpu frá RUB23 að hlaupi loknu. 10 km ganga fer af stað kl. 10:00 en 5 km ganga og 5 og 10 km hlaup kl. 11:00.