• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fjórða vetrarhlaup UFA

Rúmlega þrjátíu hlauparar tóku þátt í fjórða hlaupi vetrarhlaupasyrpu UFA sem fram fór í morgun. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark á 36:12, annar karla var Stefán Viðar Sigtryggsson á 41:06 og þriðji var Sævar Helgason á 42:12. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:37, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 48:25 og þriðja var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 48:45.

Keppni í liðakeppninni var hnífjöfn og skildu aðeins nokkrar mínútur að samanlagðan tíma fyrstu fjögurra sveita. Sveit Eyrarskokks 4 kom sterk inn og sigraði í hlaupinu í dag, Víkingasveitin náði öðru sæti og Eyrarskokk 1 þriðja sæti. Eyrarskokk 1 leiðir stigakeppnina að fjórum hlaupum loknum og hefur eins stigs forskot á sveit Bjargs, Víkingasveitin vermir síðan þriðja sætið.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu í dag og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða að loknum fjórum hlaupum.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA