Eins og fram hefur komið byrjaði Ragúel Pino daginn af krafti þegar hann sigrað í 60m hlaupi og kúlu. Hann bætti við einum sigri enn þegar hann stökk 1,42m í hástökki. Hafdís Sigurðardóttir sigraði 200m hlaupið á 24,78 sek, sem er bæting og einnig sigrðai hún í langstökki með 6,04m stökki. Ásgerður Jana Ágústdóttir sigraði í sínum flokki með 5,0m í langstökki og 12,44m í kúluvarpi. Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 60m hlaupi á 7,08 sek sem er bæting hjá honum. Sesselja Dís sigraði í sínum flokki í kúluvarpi með kasti upp á 9,70m. Fríða Björk Einarsdóttir sigraði sinn flokk í kúluvarpi með kasti upp á 11,39m og Berglind Björk Guðmundsdóttir sigraði í 800m hlaupi á tímanum 2:27,9 mín. En það voru fleiri sem komust á verðlaunapall því Rún Árnadóttir varð þriðja í kúluvarpi með kasti upp á 10,31m, Hafdís varð önnur í 60m hlaupi á 7,83 sek og Kolbeinn Höður varð annar í 200m hlaupi á 21,96 sek, sem er hans besti tími í 200 innanhúss. Aðrir keppendur UFA þau Rakel Ósk Björnsdóttir, Stefán Þór Jósefsson, Agnes Eva Þórarinsdóttir, Selma Líf Þórólfsdóttir, Einar Örn Gíslason og Guðmundur Freyr Jónsson stóðu sig einnig með mikilli prýði í dag. Bjarki Gíslason hefur keppni á morgun í stangarstökki og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort hann slær Akureyrarmetið enn og aftur. Öll úrslitin í daga má nálgast hér.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.