Flýtilyklar
Fréttir
Reykjavík International 2013 – Frjálsíţróttahluti
UFA mun eiga 9 keppendur á frjálsíþróttahluta RIG 2013 sem er stærsta frjálsíþróttamót vetrarins á Íslandi en þetta er eina frjálsíþróttamót ársins sem er hluti af mótaröð Evrópska Frjálsíþróttasambandsins (EAA). Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mótið að vera viðurkennt af EAA enda hafa fjölmargar fyrirspurnir komið frá erlendum keppendum um að fá að keppa á mótinu. Færri komust að en vildu en þó mæta 7 erlendir keppendur frá 3 löndum til leiks þetta árið.
Keppendur frá UFA eru eftirfarandi:
Bjarki setti Akureyrarmet
Bjarki Gíslason fór yfir 5,0m í stangarstökki á Reykjavíkurmeistaramóti 15 ára og eldri í gærkvöldi og setti þar með glæsilegt
Akureyrarmet. Þetta er frábær árangur hjá Bjarka sem hefur ekkert getað keppt sl ár vegna bakmeiðsla. Bjarki hafði áður stokkið 4,90m innanhúss, í febrúar 2011, hann keppir svo á laugardaginn á RIG mótinu í Laugardalshöllinni.
Lesa meira
Akureyrarmet. Þetta er frábær árangur hjá Bjarka sem hefur ekkert getað keppt sl ár vegna bakmeiðsla. Bjarki hafði áður stokkið 4,90m innanhúss, í febrúar 2011, hann keppir svo á laugardaginn á RIG mótinu í Laugardalshöllinni.Ásgerđur Jana íslandsmeistarai í fjölţraut
UFA félagar stóðu sig vel á MÍ í fjölþrautum sem haldið var síðastliðna helgi. Ásgerður Jana Ágústsdóttir sigraði í flokki 17 ára og yngri með 3390 stig sem er hennar besti árangur í þraut til þessa. Rakel Ósk Björnsdóttir varð önnur í flokki kvenna með 3120 stig og Stefán Þór Jósefsson var annar í flokki karla með 3873 stig en bæði bættu þau sinn persónulega árangur.