Flýtilyklar
Fréttir
MÍ 15 - 22 ára haldiđ um nćstu helgi

Unglingameistaramót Íslands, 15 – 22 ára, innanhúss verður haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um næstu helgi, dagana 2. – 3. febrúar. UFA sendir frækna sveit frjálsíþróttafólks á mótið og verður fróðlegt að fylgjast með árangri þeirra eftir frábæra frammistöðu á Stórmóti ÍR um síðustu helgi. Búist er við góðri þátttöku viðs vegar að af landinu. Keppni hefst á laugardagsmorgninum kl. 10 og stendur til 16.30. Á sunnudeginum hefst keppni að nýju kl. 10 og er áætlað að mótinu ljúki síðdegis. (Myndir: Gunnlaugur Júlíusson).
Ađalfundur UFA 2013
Viđtal viđ Bjarka Gíslason
Í Mor
gunblaðinu í dag er viðtal við Bjarka Gíslason. Tilefnið er að Bjarki er nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum, en byrjar á því að rjúfa 5m múrinn í stangarstökki og á nú best 5,10m eins og fram hefur komið á þessari síðu. (Mynd Gunnlaugur Júlíusson)