• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Meistaramót Íslands - seinni dagur

8396351080_29417224a8_b_640

 8396351666_a5bdfd6ec3_b_640Rannveig Oddsdóttir úr UFA vann öruggan sigur í 3.000 metra hlaupi kvenna á 10:34,89 mínútum. Fríða Rún Þórðardóttir úr ÍR kom næst á 10:43,35 og Helga Elíasdóttir úr Fjölni varð í 3. sæti á 10:47,44 mínútum.

Hafdís, sem vann langstökkið í gær, bætti öðrum Íslandsmeistaratitli í sarpinn þegar hún vann öruggan sigur í 200 metra hlaupi í dag. Hafdís kom í mark á 24,70 sekúndum en Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir úr ÍR, sem vann 60 metra hlaup í gær, varð í 2. sæti á 24,98 sekúndum. Var þetta bráðskemmtilegt og spennandi hlaup.

Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA varð að lúta í gras fyrir ólympíufaranum og Íslandsmethafanum Kára Steini Karlssyni úr Breiðabliki í 3000 metra hlaupinu í dag. Kári kom í mark á 8:21,70 mínútum og var 1,88 sekúndum á undan Þorbergi.

Sveit UFA í kvennaflokki varð í 2. sæti á 3:56,95 mínútum í 400 metra boðhlaupi. Sveitina skipuðu þær Hafdís Sigurðardóttir, Ásgerður Jana Ágústsdóttir, Agnes Eva Þórarinsdóttir og Rakel Ósk Björnsdóttir. 

Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA, sem vann 400 metra hlaupið í gær, varð í 3. sæti á 22,11 sekúndum í æsispennandi 200 metra halupi, en Trausti Stefánsson úr FH vann en hann kom í mark á 21,86 sekúndu, 1/100 úr sekúndu á undan Ívari Kristni Jasonarsyni úr ÍR. 

Stefán Þór Jósefsson úr UFA varð í 3. sæti á 9,96 sekúndum í 60m grindahlaupi.

Þá varð Agnes Eva Þórarinsdóttir fjórða í þrístökki með 10,54 metra og Rakel Ósk Björnsdóttir varð sjötta í 60m grindahlaupi.

Þetta var í heildina mjög gott mót hjá keppendum UFA og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA