• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Fundur vegna Gautaborgarferđar

Næstkomandi miðvikudag, 30. janúar, verður fundur vegna Gautaborgarleikanna næsta sumar. Fundurinn verður haldinn í kaffiteríu Íþróttahallarinnar og hefst klukkan 18:00. Mikilvægt að allir sem ætla að fara á leikana mæti.

Ferðanefndin

Lesa meira

Frábćr árangur á Stórmóti ÍR

Islandsmeistarar UFA 2012Í dag héldu UFA félagar áfram að gera það gott á Stórmóti ÍR. Eins og fram hefur komið setti Kolbeinn Höður Gunnarsson glæsilegt Íslandsmet í 400m hlaupi karla þegar hann hljóp á 48.03 sek. Hafdís Sigurðardóttir sigraði örugglega í 400m hlaupi kvenna á tímanum 56,04 sek. Bjarki Gíslason sigraði í stangarstökki með 5,0m stökki. Rún Árnadóttir sigraði einnig í sínum flokki í stangarstökki þegar hún fór yfir 2,60m og einnig varð hún þriðja í þrístökki. Selma Líf Þórólfsdóttir sveif yfir 1,57m í hástökki og sigraði sinn flokk. Berglind Björk Guðmundsdóttir sigraði 400m hlaupið í sínum flokki örugglega og varð önnur í þrístökki. Ásgerður Jana vann sitt þriðja gull á mótinu með sigri í hástökki og vann bronsverðlaun í 60 m grind.

Lesa meira

Kolbeinn međ glćsilegt Íslandsmet í 400

Kolbeinn Höður Gunnarsson sumarmot_umse_og_ufa_21_640var rétt í þessu að setja glæsilegt Íslandsmet í 400m hlaupi karla innanhús á Stórmóti ÍR, þegar hann hljóp á tímanum 48,03 sek. Bætti hann árangur sinn um 29/100 frá því um síðustu helgi þegar hann hljóp 400m á 48,33 sek sem var þá Íslandsmet í flokki 18-19 ára pilta.

Glæsilegur árangur sem tryggir honum um leið farseðil á Evrópumótið í sumar.

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA