Stefán Þór Jósefsson vann þrístökkið með stökki upp á 12,59m og var að vonum sigurreifur að keppni lokinni.
Í 400 metra hlaupi karla var hnífjöfn keppni um sigurinn eins og búast mátti við. Þar áttust þrír hröðustu 400m hlauparar Íslands við og stefndu allir á að bæta tíma sinn og hlaupa á eða undir 48 sekundum, sem er lágmarikið á EM innanhúss 2013. Sennilega fór of mikil orka hjá þeim í að berjast sín á milli því þetta varð hörkubarátta sem endaði með því að Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA vann sigur á 48,58 sekúndum en Trausti Stefánsson úr FH kom næstur, 1/100 úr sekúndu á eftir honum. Ívar Kristinn Jasonarson úr ÍR varð svo þriðji á 48,86 sekúndum.
Hafdís Sigurðardóttir vann langstökkið með 6,17 metra stökki en hún átti tvö stökk yfir 6 metra. Sveinbjörg Zophoníasdóttir stökk 5,99 metra og María Rún Gunnlaugsdóttir varð í 3. sæti með 5,60 metra stökki. Hafdís varð önnur í 60m hlaupinu eftir harða keppni við Hrafnhildi Eir Hermóðsdóttur úr ÍR. Þá varð Hafdís einnig önnur í 400m hlaupi kvenna en þar vann Aníta Hinriksdóttir á sínum albesta tíma hingað til.
Kolbeinn Höður hljóp í 60m undanrásum og undanúrslitum og fór inn í úrslit með besta tíma allra keppenda 7,04 sek og bætti tíma sinn frá því um síðustu helgi um 3/100 sek. Úrslitahlaupið í 60m var svo nærri 400m hlaupinu að hann tók ekki á því þar.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð önnur í kúluvarpi þegar hún kastaði 11,86m. Þá varð hún fjórða í hástökki en hún fór yfir 1,61m.
Þetta var ekki dagurinn hans Bjarka Gíslasonar, en hann varð annar í stangarstökki með því að fara yfir 4,80m. Bjarki var ekki ánægður með frammsitöðu sína í dag, en hann felldi 5m þrisvar og varð þannig af Íslandsmeistaratitlinum.
Þá varð Agnes Eva Þórarinsdóttir fimmta í langstökki með 5,29m og Rakel Ósk Björnsdóttir varð fimmta í hástökki með 1,58m.
Á morgun verður fróðlegt að sjá hvernig keppendum UFA gengur og óskum þeim alls hins besta!!!