• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Rannveig hlaupari ársins

Framfarir, hollvinafélag  millivegalengda- og langhlaupara völdu nú nýlega framúrskarandi hlaupara og hlaupahóp ársins 2012. Hlaupari ársins og með mestu framfarir var Rannveig Oddsdóttir hlaupari úr UFA.
Lesa meira

Frábćr árangur hjá íţróttamönnum UFA

Árangur hópsins frá UFA sem tók þátt í frjálsíþróttahluta Reykjavík International 2013 sem fram fór í dag var hreint frábær. Það bættu allir sinn besta árangur og komust allir keppendur UFA utan einn á verðlaunapall í einni eða fleiri greinum. Hafdís Sigurðardóttir sigraði langstökkið og varð önnur í 60m hlaupi, Rannveig Oddsdóttir sigraði í 3000m hlaupi og það gerði Þorbergur Ingi Jónsson einnig í karlaflokki, Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð önnur í kúluvarpi, Rakel Ósk Björnsdóttir varð önnur í hástökki og 400m hlaupi, Berglind Björk Guðmundsdóttir varð þriðja í 600m hlaupi í meyjaflokki, Bjarki Gíslason sigraði stangarstökkið örugglega á nýju Akureyrarmeti 5,20m og Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði 400m hlaupið á nýju Íslandsmeti í 18-19 ára flokki pilta, en hann hljóp á 48,32 sek og þá varð hann annar í 60m hlaupi. Þetta er eins og áður sagði frábær árangur hjá hópnum og lofar góðu fyrir framhaldið. Öll úrslit á mótinu má nálgast hér .
Lesa meira

Kolbeinn setti Íslandsmet og Bjarki setti Akureyrarmet

Kolbeinn Höður Gunnarsson setti Íslandsmet í 400m hlaupi á frjálsíþróttahluta Reykjavík International 2013, sem fram fór í dag. Hann hljóp á tímanum 48,32 sek og bætti sinn besta árangur um 1 sek og Íslandsmetið um 1/100. Frábær árangur í upphafi keppnistímabilsins innanhúss. Þá er árangur Bjarka Gíslasonar ekki síðri á sama móti, en hann bætti Akureyrarmetið í stangarstökki í annað sinn á þremur dögum í dag þegar hann stökk 5,10m. Hann hefur þá bætt metið um 20cm sem er frábær árangur og má velta því upp hvort hann verði ekki búinn að bæta Íslandsmetið sem er 5,30m í lok febrúar með sama áframhaldi.
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA