Sex lið eru skráð til þátttöku í Bikarkeppni FRÍ sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 16. febrúar. Þau eru Breiðablik, FH, HSK, ÍR sem er bæði með A og B lið og sameiginlegt lið Norðurlands, þ.e. UMSS, UMSE, HSÞ og UFA.Flýtilyklar
Fréttir
Bikarkeppni FRÍ um helgina - sex liđ skráđ
Sex lið eru skráð til þátttöku í Bikarkeppni FRÍ sem fram fer í Laugardalshöll laugardaginn 16. febrúar. Þau eru Breiðablik, FH, HSK, ÍR sem er bæði með A og B lið og sameiginlegt lið Norðurlands, þ.e. UMSS, UMSE, HSÞ og UFA.Myndir frá MÍ 2013

Í myndasafnið eru nú komnar myndir af keppendum UFA á Meistaramóti Íslands inni 2013 sem haldið var um síðustu helgi. Myndirnar má sjá hér.
Umsóknir óskast - flott tćkifćri!
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 11. til 25. júní n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympíuarfleifðin auk þess sem fjallað er um styrkingu ólympíuhugsjónarinnar með nýjum kynslóðum barna og ungmenna.
Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Leitað er eftir einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Þeir skulu hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.