Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
Á vefnum silfrid.is má finna fréttir af frjálsíþróttamótunum og þar eru einnig fjölmargar upptökur af einstökum viðburðum. Frábært framtak hjá þeim sem sjá um þessa síðu og afar skemmtilegt fyrir þá sem heima sitja að geta fylgst þannig með keppninni, því ekki eru sjónvarpsstöðvarnar á staðnum til að sinna því hlutverki.
Þá er einnig rétt að benda á myndasíðuna http://www.flickr.com/photos/armannfrjalsar sem Gunnlaugur Júlíusson hefur séð um og setur hann þar inn fjöldann allan af ljósmyndum af keppendum í flestum mótum. Annað ómetanlegt framlag fyrir áhugafólk um frjálsar íþróttir.
Myndin af Stefáni Þór Jósefssyni er frá Gunnlaugi.

Rannveig Oddsdóttir úr UFA vann öruggan sigur í 3.000 metra hlaupi kvenna á 10:34,89 mínútum. Fríða Rún Þórðardóttir úr ÍR kom næst á 10:43,35 og Helga Elíasdóttir úr Fjölni varð í 3. sæti á 10:47,44 mínútum.
Hafdís, sem vann langstökkið í gær, bætti öðrum Íslandsmeistaratitli í sarpinn þegar hún vann öruggan sigur í 200 metra hlaupi í dag. Hafdís kom í mark á 24,70 sekúndum en Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir úr ÍR, sem vann 60 metra hlaup í gær, varð í 2. sæti á 24,98 sekúndum. Var þetta bráðskemmtilegt og spennandi hlaup.
Þorbergur Ingi Jónsson úr UFA varð að lúta í gras fyrir ólympíufaranum og Íslandsmethafanum Kára Steini Karlssyni úr Breiðabliki í 3000 metra hlaupinu í dag. Kári kom í mark á 8:21,70 mínútum og var 1,88 sekúndum á undan Þorbergi.
Sveit UFA í kvennaflokki varð í 2. sæti á 3:56,95 mínútum í 400 metra boðhlaupi. Sveitina skipuðu þær Hafdís Sigurðardóttir, Ásgerður Jana Ágústsdóttir, Agnes Eva Þórarinsdóttir og Rakel Ósk Björnsdóttir.
Stefán Þór Jósefsson vann þrístökkið með stökki upp á 12,59m og var að vonum sigurreifur að keppni lokinni.
Í 400 metra hlaupi karla var hnífjöfn keppni um sigurinn eins og búast mátti við. Þar áttust þrír hröðustu 400m hlauparar Íslands við og stefndu allir á að bæta tíma sinn og hlaupa á eða undir 48 sekundum, sem er lágmarikið á EM innanhúss 2013. Sennilega fór of mikil orka hjá þeim í að berjast sín á milli því þetta varð hörkubarátta sem endaði með því að Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA vann sigur á 48,58 sekúndum en Trausti Stefánsson úr FH kom næstur, 1/100 úr sekúndu á eftir honum. Ívar Kristinn Jasonarson úr ÍR varð svo þriðji á 48,86 sekúndum.
Hafdís Sigurðardóttir vann langstökkið með 6,17 metra stökki en hún átti tvö stökk yfir 6 metra. Sveinbjörg Zophoníasdóttir stökk 5,99 metra og María Rún Gunnlaugsdóttir varð í 3. sæti með 5,60 metra stökki. Hafdís varð önnur í 60m hlaupinu eftir harða keppni við Hrafnhildi Eir Hermóðsdóttur úr ÍR. Þá varð Hafdís einnig önnur í 400m hlaupi kvenna en þar vann Aníta Hinriksdóttir á sínum albesta tíma hingað til.