Þrjátíu hlauparar tóku þátt í Vetrarhlaupi í morgun, við ágætar aðstæður. Hálkan óðum að hverfa og brautin því með betra móti, hálkulaust á löngum köflum ;-) Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark á nýju brautarmeti 33:48 og sló þar með eigið met sem hann setti í október. Annar karla var Stefán Viðar Sigtryggsson á 38:38 og þriðji var Ögmundur Hrafn Magnússon á 39:14. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 39:24, sem er hennar besti tími í hlaupunum í vetur, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 44:59 og þriðja Sonja Sif Jóhannsdóttir á 45:11.
Í liðakeppninni bar sveit Bjargs sigur úr bítum og hefur nú forystu í stigakeppni liða. Helstu keppinautarnir í stigakeppni Víkingasveitin og Eyrarskokk 1 náðu ekki fullskipaðri sveit í dag. Sveit Eyrarskokks 4 náði öðrum besta tíma dagsins og Skokki þriðja besta tímanum.
Í stigakeppni einstaklinga hafa Þorbergur og Rannveig örugga forystu en enn er hart barist um annað og þriðja sætið í stigakeppni karla og kvenna og úrslit í aldursflokkum munu ekki ráðast fyrr en í síðasta hlaupinu sem fram fer 30. mars.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu í dag og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða.